Fótbolti

Stuðningsmaður Ajax slasaðist alvarlega

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Danny Hoesen fagnar marki sínu í kvöld.
Danny Hoesen fagnar marki sínu í kvöld. Mynd/AP
Stuðningsmaður Ajax hlaut alvarleg meiðsli eftir tíu metra fall úr áhorfendastúku er leikur liðsins gegn Barcelona í Meistaradeild Evrópu stóð yfir í kvöld.

Ajax vann leikinn, 2-1, og braust út mikill fögnuður þegar að Danny Hoesen kom sínu liði í 2-0 forystu undir lok fyrri hálfleiks. Það var þá þegar stuðningsmaðurinn féll úr stúkunni og lenti við hlið vallarins.

Samkvæmt fréttamiðlum ytra var læknateymi flutt á völlinn í hálfleik með þyrlu og var svo ekið með stuðningsmanninn í sjúkrabíl í burtu stuttu síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×