Fótbolti

City skoraði fjögur gegn Tékkunum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Manchester City á enn möguleika á að hirða toppsæti D-riðils Meistaradeildar Evrópu eftir 4-2 sigur á tékkneska liðinu Viktoria Plzen í kvöld.

City var þegar búið að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitunum fyrir leiki kvöldsins en fyrr í dag hafði Bayern betur gegn CSKA Moskvu í Rússlandi.

Bayern er með fimmtán stig á toppnum en City með tólf. Þessi lið mætast á Allianz Arena í München í lokaumferð riðlakeppninnar þann 10. desember næstkomandi.

Tékkarnir voru þó lengi vel inn í leiknum og jöfnuðu metin tvívegis, áður en City gerði út um leikinn með tveimur mörkum á síðasta stundarfjórðungnum.

Sergio Agüero, Samir Nasri, Alvaro Negredo og Edin Dzeko skoruðu mörk City í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×