Fótbolti

Messi meiddist í þriðja sinn í vetur | Frá í tvo mánuði

Það hefur mikið verið rætt um álagið á Lionel Messi og sú umræða er ekkert að fara að deyja út. Messi fór meiddur af velli um helgina en þetta er í þriðja sinn sem hann meiðist í vetur.

Ljóst er að meiðsli markheppna töframannsins eru þess eðlis að hann verður frá keppni fram á nýtt ár. Argentínumaðurinn haltraði af velli eftir aðeins 21 mínútu gegn Real Betis. Liðið saknaði hans augljóslega því leiknum lyktaði með markalausu jafntefli.

Meiðsli Messi munu væntanlega gera það að verkum að hann missir af landsleikjum gegn Ekvador og Bosníu.

„Þessi meiðsli tengjast ekkert síðustu meiðslum. Núna fann hann til í hægri fætinum," sagði Gerardo Martino, þjálfari Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×