Fótbolti

Valdes: Messi er Guð

Lionel Messi.
Lionel Messi.
Barcelona mun verða án aðstoðar Argentínumannsins Lionel Messi það sem eftir lifir ársins. Besti knattspyrnumaður heims er meiddur.

Victor Valdes, markvörður Barcelona, segir að liðið muni að sjálfsögðu sakna Messi mikið.

"Hann er Guð. Besti leikmaður heims í dag og allra tíma fyrir það sem hann hefur gefið þessu liði," sagði Valdes sem augljóslega er ánægður með félaga sinn.

"Barcelona mun alltaf treysta á hann þar sem hann er besti knattspyrnumaður heims. Mér sýnist hann vera leiður yfir núverandi aðstæðum. Við leikmenn erum sjálfselskir og skiljum ekki af hverju við getum ekki spilað."

Messi var búinn að skora 14 mörk í 16 leikjum á tímabilinu áður en hann meiddist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×