Fótbolti

Gummi, Tóti og félagar unnu með minnsta mun

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þórarinn Ingi Valdimarsson.
Þórarinn Ingi Valdimarsson.
Guðmundur Þórarinsson var í byrjunarliðinu og Þórarinn Ingi Valdimarsson kom inn á sem varamaður í 1-0 heimasigri Sarpsborg 08 gegn Ranheim í leik um sæti í efstu deild norsku knattspyrnunnar.

Leikið var í Sarpsborg í kvöld en um fyrri leik liðanna er að ræða. Sarpsborgarar léku í efstu deild á tímabilinu sem nú er nýlokið en Ranheim gerði góða hluti í næstefstu deild.

Eina mark leiksins kom undir lok fyrri hálfleiks. Þórarinn Ingi kom inn á sem varamaður á 68. mínútu. Liðin mætast að nýju á laugardag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×