Fótbolti

Tvíburarnir hætta á sama tíma

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kristin og Marie Hammarström
Kristin og Marie Hammarström Mynd/NordicPhotos/Getty
Sænsku landsliðskonurnar og tvíburarnir Kristin og Marie Hammarström hafa báðar ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna en þær hafa verið lykilleikmenn í sænska landsliðinu síðustu ár.

Báðar enduðu þær Kristin og Marie ferilinn sem liðsfélagar hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Kopparbergs/Göteborg FC en þær hófu  ferilinn hjá KIF Örebro og léku þá við hlið Eddu Garðarsdóttur og Ólínu Guðbjargar Viðarsdóttur.

Kristin og Marie Hammarström voru báðar í liði Svía sem sló íslenska landsliðið út úr átta liða úrslitum EM í sumar. Marie Hammarström skoraði fyrsta mark leiksins strax á þriðju mínútu og Kristin Hammarström hélt marki sínu hreinu í 4-0 sigri.

Systurnar eru 31 árs gamlar en þær fæddust 29. mars 1982. Kristin er markvörður en Marie miðjumaður. Báðar rökstuddu þær ákvörðun sína á heimasíðu sænska knattspyrnusambandsins.

„Ég er búin að æfa á hæsta stigi í fimmtán ár og hef spilað yfir 200 leiki í sænsku úrvalsdeildinni. Þetta er orðið ágætt. Fjölskylduaðstæðurnar höfðu líka áhrif. Maðurinn minn býr og vinnur í  Örebro og það hefur gengið upp í eitt ár en er ekki gott fyrirkomulag. Fyrir utan það erum við að hugsa um að stofna fjölskyldu," sagði Marie Hammarström við heimasíðu sænska sambandsins.

„Ég hef hugsað um það að hætta í eitt ár og ég er ánægð að ég beið með það og fékk að upplifa það að spila á EM á heimavelli. Þetta var krefjandi sumar. Sænska deildin er ekki lengur eins spennandi og það eru tvö ár í næsta stórmót sem er langur tími," sagði Kristin Hammarström um ákvörðun sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×