Fótbolti

Bernabéu gæti fengið nafnið Microsoft-völlurinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
nordicphotos/getty
Hugbúnaðarfyrirtækið Microsoft mun vera í viðræðum við spænska knattspyrnuliðið Real Madrid um að leikvangur liðsins sem nú ber nafnið Bernabéu verði í framtíðinni Microsoft-völlurinn.

Santiago Bernabéu er einn glæsilegasti völlur í heiminum og rúmar rúmlega 85.000 manns í sæti.

Mörg íþróttafélög í heiminum hafa nú selt nafnið á sínum velli og má þar meðal annars nefna Emirates-völlinn í London þar sem Arsenal leikur sína heimaleiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×