Fótbolti

„Allir leikmenn Barcelona betri en Ronaldo"

Stefán Árni Pálsson skrifar
Andoni Zubizarreta til hægri.
Andoni Zubizarreta til hægri. nordicphotos/getty
Andoni Zubizarreta, yfirmaður knattspyrnumála hjá Barcelona, vill meina að Cristian Tello, leikmaður Barcelona, sé betri en Cristiano Ronaldo hjá Real Madrid en margir vilja meina að sá síðarnefndi sé einn besti leikmaður sögunnar.

Hann gengur einnig svo langt að segja að allir leikmenn Barcelona séu betri en Ronaldo.

Barcelona vann AC Milan í Meistaradeild Evrópu í gær, 3-1,  en þá skoraði Lionel Messi tvö mörk.

„Í þessum leik sáum við hvernig karakter Messi er,“ sagði Zubizarreta eftir leikinn í gær í sjónvarpsviðtali.

„Messi er besti leikmaður í heiminum, Tello er jafnvel betri en Ronaldo og í raun eru allir leikmenn Barcelona betri að mínu mati.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×