Fótbolti

Tvö sjálfsmörk í fyrsta jafntefli Atletico á tímabilinu

Mynd/AP
Atletico Madrid gerði fyrsta jafntefli sitt á tímabilinu þegar þeir mættu Villareal á Camp El Madrigal í Villareal í kvöld. Atletico náði forskotinu snemma leiks en Villareal jafnaði verðskuldað í seinni hálfleik.

Atletico náði forskotinu strax á annari mínútu þegar Mario Gaspar, leikmaður Villareal setti boltann í eigið net þeger hann var að reyna að stýra boltanum frá David Villa.

Heimamenn í Villareal pressuðu stíft í leit að jöfnunarmarki og uppskáru mark þegar tæplega tíu mínútur voru til leiksloka þegar Juanfran skoraði sjálfsmark.

Hvorugu liðinu tókst að bæta við marki og lauk leiknum því með 1-1 jafntefli. Atletico jafnaði Barcelona að stigum með jafnteflinu en Barcelona getur náð þriggja stiga forskoti með sigri gegn Real Betis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×