Fótbolti

Messi meiddist í sigri Barcelona

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Neymar
Neymar Mynd/NordicPhotos/Getty
Þrátt fyrir að Lionel Messi hafi farið meiddur af velli sigruðu Barcelona botnlið Real Betis örugglega 4-1 á útivelli. Messi fór meiddur af velli um miðbik fyrri hálfleiks en það kom ekki að sök.

Neymar og Pedro skoruðu með mínútu millibili í fyrri hálfleik og eftir það voru úrslitin aldrei spurning. Cesc Fabregas bætti við tveimur mörkum í seinni hálfleik áður en Molina minnkaði muninn fyrir Betis í uppbótartíma úr vítaspyrnu.

Sigurinn var hinsvegar aldrei í hættu og tekur Barcelona þriggja stiga forskot á toppi La Liga eftir að Atletico Madrid gerði jafntefli fyrr í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×