Fótbolti

Þakklátur faðir skrifaði Källström bréf

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Källström og Max í Stokkhólmi á dögunum.
Källström og Max í Stokkhólmi á dögunum.
Hinn átta ára gamli Max hafði æft sig í margar vikur til þess að þora að ganga út á Friends leikvanginn fyrir landsleik Svíþjóðar og Þýskalands á dögunum.

Max er með Williams-heilkenni líkt og tíu önnur börn sem leiddu landsliðsmenn Svía út á völlinn í aðdraganda leiksins. Max var afar stressaður fyrir leikinn enda er hann sérstaklega viðkvæmur gagnvart miklum hávaða. Um fimmtíu þúsund áhorfendur voru mættir til að fylgjast með leiknum.

Hann náði hins vegar að mynda góð tengsl við landsliðsmann Svía, miðjumanninn Kim Källström. Svo þakklátur var Emil, faðir Max, að hann ritaði Källström opinskátt bréf til þess að útskýra hversu mikla þýðingu stundin hefði haft fyrir son sinn.

„Það voru viðbrögð þín Kim sem urðu til þess að sonur minn upplifði nákvæmlega það sama og allir aðrir þegar börnin gengu inn á völlinn,“ skrifar Emil.

Hann segir Max hafa verið stoltur, fundist hann vera einstakur, ánægður að hafa klárað dæmið og verið sérstaklega hamingjusamur.

„Það sem þú gerðir á þessum sjö til átta mínútum færir okkur fjölskyldunni margra mánaða gleði, minningar út lífið og upplifun Max: „Ég gat þetta.“ Því segir ég TAKK frá innstu hjartarótum!“

Samkvæmt föðurnum er Max nú öllum stundum klæddur sænska landsliðsbúningnum, telur sig vera sjónvarpsstjörnu og það sé Källström að þakka.

Källström er ánægður að foreldrar Max séu ánægðir. Mestu máli hafi skipt að þeir Max hafi átt góða stund saman.

„Á augnablikum sem þessum hegðar maður sér frekar eins og nágranni eða foreldri heldur en knattspyrnumaður. Ég geri mér grein fyrir ábyrgð gagnvart foreldrum sem eru örugglega margir hverjir efins og stressaðir í stúkunni. En líka ábyrgð gagnvart börnunum. Ég reyni að vera afslappaður og hef yfirleitt gaman af börnunum,“ segir Källström.

Óhætt er að segja að bréfið hafi vakið mikla athygli. Nálægt 100 þúsund manns hafa líkað við það hér á Facebook þar sem hægt er að lesa það í heild sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×