Fótbolti

Atlético Madrid á miklu skriði í Meistaradeildinni - úrslit kvöldsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Diego Costa er búinn að vera frábær með Atlético Madrid á þessu tímabili.
Diego Costa er búinn að vera frábær með Atlético Madrid á þessu tímabili. Mynd/AFP
Atlético Madrid er komið langleiðina inn í sextán liða úrslitin eftir þriðja sigur sinn í röð í Meistaradeildinni í kvöld en liðið vann sannfærandi 3-0 útisigur á FH-bönunum í Austria Vín í kvöld.

Diego Costa skoraði tvö marka Atlético Madrid í Vín en liðið hefur nú fimm stiga forskot á Zenit St. Petersburg sem er í öðru sæti riðilsins.

Zenit St. Petersburg þurfti að bíða lengi eftir sigurmarki sínu á móti Porto en tókst að lokum að tryggja sér dýrmætan 1-0 útisigur í Portúgal.

Porto-maðurinn Hector Herrera gerði liðsfélögum sínum mikinn grikk þegar hann fékk klaufalegt rautt spjald á sjöttu mínútu fyrir tvö gul spjöld í röð. Það fyrra fyrir brot og það seinna fyrir að tefja framkvæmd aukaspyrnunnar. Porto hélt út í 79 mínútur en Aleksandr Kerzhakov skoraði sigurmark Zenit á 85. mínútu.

Fernando Torres var í byrjunarliði Chelsea í hundraðasta skiptið í kvöld og hélt upp á það með því að skora tvö mörk í 3-0 útisigri á þýska liðinu Schalke 04 í E-riðli Meistaradeildarinnar í fótbolta.

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hélt upp á 64. afmælið sitt í dag en fékk engin stig í afmælisgjöf þegar Arsenal-liðið tapaði 1-2 á heimavelli á móti þýska liðinu Borussia Dortmund í toppslagnum í F-riðli Meistaradeildarinnar í fótbolta.

Pólverjinn Robert Lewandowski skoraði sigurmarkið átta mínútum fyrir leikslok úr hnitmiðari skyndisókn en Arsenal-menn höfðu ekki heppnina með sér á heimavelli sínum í kvöld.  Þetta var fyrsta tap Arsenal síðan í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

AC Milan og Barcelona gerðu 1-1 jafntefli í toppslag H-riðils Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld og eru Börsungar því áfram með tveggja stiga forskot á toppi riðilsins.

Barcelona var miklu meira með boltann að vanda og fékk nóg af færum í leiknum til þess að tryggja sér sigurinn en Marco Amelia stóð sig vel í marki AC Milan og Ítalarnir náðu í stig.

Kolbeinn Sigþórsson og félagar í Ajax eru svo gott sem úr leik í Meistaradeildinni eftir 1-2 tap á útivelli á móti Celtic í kvöld. Kolbeinn var nálægt því að opna markareikning sinn í Meistaradeildinni en fyrsta Meistaradeildarmarkið lætur enn bíða eftir sér.

Úrslit og markaskorarar í Meistaradeildinni í kvöld:

E-riðill

Schalke 04 - Chelsea    0-3

0-1 Fernando Torres (5.), 0-2 Fernando Torres (68.), 0-3 Eden Hazard (87.)

Steaua Búkarest - Basel    1-1

0-1 Marcelo Diaz (48.), 1-1 Leandro Tatu (88.)

F-riðill

Arsenal - Borussia Dortmund    1-2

0-1 Henrikh Mkhitaryan (16.), 1-1 Olivier Giroud (41.), 1-2 Robert Lewandowski (82.)

Marseille - Napoli    1-2

0-1 José Maria Callejón (42.), 0-2 Duván Zapata (67.), 1-2 Jordan Ayew (86.)

G-riðill

Austria Vín - Atlético Madrid    0-3

0-1 Raúl García (8.), 0-2 Diego Costa (20.), 0-3 Diego Costa (53.)

Porto - Zenit St. Petersburg    0-1

0-1 Aleksandr Kerzhakov (85.)

H-riðill

AC Milan - Barcelona    1-1

1-0 Robinho (9.), 1-1 Lionel Messi (23.)

Celtic - Ajax    2-1

1-0 James Forrest, víti (45.), 2-0 Stefano Denswil (54.), 2-1 Lasse Schöne (90.+4)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×