Matur

Í eldhúsinu hennar Evu - Ítalskar kjötbollur

Fyrsti þáttur Í eldhúsinu hennar Evu á Stöð 3.

Hér býr Eva Laufey til ljúffengar ítalskar kjötbollur fyrir fjóra til fimm. Uppskriftina má finna hér fyrir neðan.

Í eldhúsinu hennar Evu er á dagskrá Stöðvar 3 á mánudagskvöldum klukkan 20.45.

Rauða sósan 

1 msk ólífuolía 

2 -3 hvítlauksrif, marin

1/2 laukur, smátt skorinn

2 dósir hakkaðir tómatar

4 dl vatn

1/2 kjúklingateningur

1- 2 msk.fersk steinselja, smátt söxuð

1 – 2 msk. fersk basilíka, smátt söxuð

1 tsk. agave síróp

salt og pipar, magn eftir smekk



Hitið olíu við vægan hita í potti, steikið lauk og hvítlauk í olíunni í 1 - 2 mínútur. Bætið restinni af hráefnum út á pönnuna og leyfið sósunni að malla við vægan hita í 15 – 20 mínútur. 



Ítalskar kjötbollur 

500 g. nautahakk

1 dl. brauðrasp

1 laukur, smátt skorinn

3 hvítlauksrif, marin

2 msk. fersk steinselja, smátt söxuð

2 msk. fersk basílika, smátt söxuð

2 msk rifinn parmesanostur

1 egg, létt pískað

salt og pipar, magn eftir smekk

1 msk. olía



Blandið öllum hráefnum saman með höndunum. Mótið litlar kúlur, passið að hafa þær ekki of stórar vegna þess að þá er hætta á að þær klofni þegar þær fara ofan í sósuna. Hitið olíu á pönnu og steikið bollurnar í smá stund. Látið síðan bollurnar ofan í sósuna, leyfið bollunum að malla við vægan hita í 15 - 20 mínútur. 

Mér finnst best að bera bollurnar fram með spagettí en hægt er að nota hvaða pastategund sem er, bara þá tegund sem ykkur þykir best. 

Sjóðið spagettíið samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. Setjið spagettíið á fat og raðið síðan bollunum ofan á og hellið sósunni yfir. Rífið duglega af ferskum Parmesanosti yfir og skreytið með nokkrum ferskum basilíkulaufum.

.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.