Fótbolti

Barcelona vann risaslaginn gegn Real Madrid

Neymar fagnar marki sínu í dag.
Neymar fagnar marki sínu í dag.
Barcelona er sex stigum á undan Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni eftir frábæran 2-0 sigur á heimavelli í dag. Neymar og Sanchez sáu um markaskorun fyrir Börsunga.

Það voru heimamenn sem komust yfir er brasilíska undrabarnið Neymar skoraði. Laumaði boltanum í fjærhornið úr þröngri stöðu. Smekklega gert.

Skömmu síðar komst Lionel Messi einn í gegn en aldrei þessu vant brást honum bogalistin og skotið fór fram hjá markinu.

Það var meira líf í síðari hálfleik. Ronaldo komst næst því að skora fyrir Real en þrumuskot hans var vel varið. Ronaldo vildi líka fá víti en fékk ekki.

Það var síðan Alexis Sanchez sem kláraði leikinn með stórkostlegu marki. Fyrir utan teig vippar hann yfir Lopez markvörð og í netið. Alvöru taktar.

Gestirnir skoruðu mark í uppbótartíma en það var of lítið og allt of seint.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×