Menning

Sjáðu gjörning Ragnars í Tate Modern

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Listamaðurinn Ragnar Kjartansson flutti gjörninginn Variation of Meat Joy í Tate Modern-listasafninu í Lundúnum í kvöld.

Verkið var hluti af gjörningadagskrá safnsins sem er sérstaklega hönnuð fyrir alnetið og gátu áhorfendur um heim allan fylgst með á netinu í rauntíma.

Eins og fram kom í Fréttablaðinu í dag nýtir Ragnar sér efnivið og töfra leikhússins í gjörningnum. Verkið á sér stað á hinu óræða svæði milli þess að gera eitthvað raunverulega og að þykjast.

Í verkinu vísar Ragnar til frægs gjörnings Carolee Schneeman, Meat Joy, en gjörningurinn fer þannig fram að yfirborði gjörningaherbergisins er breytt í rókokkóborðstofu með því að mála veggina og stilla upp leikmunum.

Til borðs sitja prúðbúnir gestir klæddir í anda tímabilsins, sem koma saman til þess eins að borða eintóma steik. Hljóðin þegar steikin er tuggin og henni kyngt eru mögnuð upp og og óma jafnvel í heyrnartólum áhorfenda við tölvuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.