Jóhann Sigurðarson orðinn "Stefaníubarn“ 28. október 2013 14:29 Jóhann Sigurðarson Vísir/Anton Brink
Leikarinn Jóhann Sigurðarson hlýtur viðurkenningu Minningarsjóðs frú Stefaníu Guðmundsdóttur þetta árið. Stefanía Borg, formaður stjórnar minningarsjóðsins, og Þorsteinn Gunnarsson leikari og stjórnarmeðlimur, sáu um að kynna og afhenda Jóhanni styrkinn og Stefaníustjakann við hátíðlega athöfn á Litla sviði Borgarleikhússins strax að lokinni síðustu sýningu verksins Rautt, í gærkvöldi. Jóhann fer með aðalhlutverkið í Rautt og hlaut fyrir frammistöðu sína tilnefningu til Grímuverðlauna 2013 sem leikari ársins. Stjórn Minningarsjóðs frú Stefaníu Guðmundsdóttur samþykkti samhljóma að heiðra Jóhann í ár fyrir störf hans sem leikari. Minningarsjóður frú Stefaníu Guðmundsdóttur var stofnaður árið 1938 af hjónunum Önnu Borg og Poul Reumert og hefur því verið starfræktur í 75 ár. Fyrsta styrkveitingin fór fram árið 1970 og styrkþegar eða „Stefaníubörn“ eru nú alls 41 talsins að meðtöldum Jóhanni.
Menning Mest lesið Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Lífið Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Lífið „Fólk í kringum þessa einstaklinga er á nálum“ Lífið Eins og þruma úr heiðskíru lofti Lífið Kim vandræðaleg á tónleikum með nýrri eiginkonu Kanye Lífið Bergrún Íris og Kolbrún keyptu í Hafnarfirði Lífið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið Menning Stjörnulífið: Skvísustælar við bakkann og áminning um óöryggi Lífið Náði að sættast við bróður sinn fyrir andlátið Lífið Fylgst með tímaskeiði í lífi konu sem greinist með krabbamein Lífið Fleiri fréttir Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Bríet lét sig ekki vanta á sýningaropnun Ynju Blævar Út um allar koppagrundir Alþingis: „Froðan flæðir endalaust, það er bara froða froða“ Skálda opnar: „Kannski ekki margir nógu vitlausir til að framkvæma þessa hugmynd“ Össur Geirsson er heiðurslistamaður Kópavogs 2024 Margmenni í sköpunargleði og stuði á safninu Ólafur Elíasson tekur yfir Piccadilly Circus og Times Square Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Sjá meira