Fótbolti

Messi byrjaður að æfa á nýjan leik

Argentínumaðurinn Lionel Messi er á ágætum batavegi og hann er byrjaður að æfa með Barcelona á nýjan leik.

Messi meiddist á læri í leik gegn Almeria þann 28. september síðastliðinn og hefur ekki spilað leik síðan. Hvorki með Barcelona né argentínska landsliðinu.

Argentínumenn lifa það af þar sem liðið er þegar búið að tryggja sér farseðilinn á HM næsta sumar.

Messi hefur verið í meðferð hjá Barcelona og mætti á sína fyrstu æfingu í gær. Barcelona á leik gegn Osasuna á laugardag og er ekki útilokað að Messi taki þátt í þeim leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×