Fótbolti

Sara Björk og Þóra flugu áfram í Meistaradeildinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sara Björk
Sara Björk mynd / daníel
Sara Björg Gunnarsdóttir og Þóra Björg Helgadóttir og félagar í sænska liðinu Malmö unnu í dag stórsigur á Lilleström, 5-0, í 32-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Malmö vann fyrri leikinn einnig örugglega 3-1 og fer liðið því sannfærandi áfram í 16-liða úrslitin.

Markvörðurinn Þóra B. Helgadóttir tók aukaspyrnu undir lok leiksins en skot hennar framhjá. Markvörðurinn var ekki sátt við spyrnuna eins og sjá má hér að neðan.

Íslendingarnir léku báðir allan leikinn í liðið Malmö en liðið mætir Wolfsburg í 16-liða úrslitum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×