Fótbolti

Ronaldo var kallaður grenjuskjóða

Það hefur áður komið fram að Portúgalinn Cristiano Ronaldo var oft kallaður litla býflugan á sínum yngri árum en nú hefur móðir hans greint frá öðru gælunafni sem Ronaldo bar.

Hann var nefnilega kallaður grenjuskjóða enda tapsár með eindæmum.

"Hann var kallaður grenjuskjóða. Tárin fóru að flæða niður kinnar hans þegar félagar hans gáfu ekki á hann eða jafnvel þegar hann eða einhver annar klúðraði færi. Það þurfti jafnvel bara lélega sendingu til þess að hann færi að gráta," sagði móðir hans, Dolores Aveiro.

Tárin og þessi óbilandi sigurvilji hafa þó komið Ronaldo ansi langt. Hann á þó enn afar erfitt með að taka mótlæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×