Fótbolti

FH-banarnir náðu í stig í Rússlandi

FH-banarnir í Austria Vín náðu í dag í sitt fyrsta stig í Meistaradeildinni þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Zenit St. Petersburg í Rússlandi.

Austurríkismennirnir rétt mörðu FH í 3. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar og slógu síðan út Dinamo Zagreb frá Króatíu í umspilinu um sæti í riðlakeppninni.

Austria Vín var manni fleiri allan seinni hálfleikinn eftir að Axel Witsel hjá Zenit fékk að líta rauða spjaldið á 44. mínútu.

Austria Vín tapaði 0-1 á móti Porto í fyrsta leik sínum í riðlakeppninni en þrátt fyrir að fyrsta stigið sé í höfn þá á liðið enn eftir að skora.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×