Fótbolti

Özil með sitt fyrsta mark í sigri á Napoli

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/NordicPhotos/Getty
Mesut Özil opnaði markareikning sinn fyrir Arsenal í kvöld þegar hann skoraði fyrra mark liðsins í 2-0 heimasigur á Napoli í toppslag í F-riðli Meistaradeildar Evrópu í fótbolta.

Arsenal er með fullt hús og þriggja stiga forskot á Napoli og Borussia Dortmund eftir tvær fyrstu umferðirnar í riðlinum.

Frábær upphafskafli Arsenal-manna gerði nánast út um leikinn en lærisveinar Arsene Wenger skoruðu þá tvö mörk á fyrstu fimmtán mínútum leiksins.

Arsenal-liðið spilaði frábærlega í fyrri hálfleiknum og gat þá bætt við mörkum en í þeim seinni tóku þeir fótinn af bensínsgjöfinni. Sigur liðsins var þó aldrei í hættu.

Mesut Özil skoraði markið sitt strax á 8. mínútu með frábæru viðstöðulausu skoti eftir sendingu frá Aaron Ramsey.

Aðeins sjö mínútum síðar lagði Özil upp mark fyrir Olivier Giroud en franski framherjinn átti einnig þátt í undirbúningi fyrsta marksins.

Fleiri urðu mörkin ekki en Arsenal fagnaði þægilegum sigri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×