Fótbolti

Casillas snýr aftur á Bernabeu gegn Ragnari og Rúrik

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Casillas og Cristiano Ronaldo með verðlaun eftir sigur á æfingamóti í sumar.
Casillas og Cristiano Ronaldo með verðlaun eftir sigur á æfingamóti í sumar. Nordicphotos/AFP
Iker Casillas verður á milli stanganna hjá Real Madrid er liðið mætir FC Kaupmannahöfn í Madríd annað kvöld. Casillas hefur ekki verið í byrjunarliði Real á heimavelli í níu mánuði.

Casillas missti sæti sitt í liðinu til Diego Lopez á síðustu leiktíð er Real lék undir stjórn Jose Mourinho. Engin breyting hefur orðið á því hver sé markvörður númer eitt undir stjórn Carlo Ancelotti. Ítalinn vill þó tefla Casillas fram í Meistaradeildinni og Konungsbikarnum.

Casillas byrjaði leikinn gegn Galatasaray í fyrstu umferð riðlakeppninnar en þurfti að fara meiddur af velli. Hann ku hafa náð sér af meiðslunum og til í slaginn annað kvöld.

Leikurinn er í annarri umferð Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu og fer fram á Santiago Bernabeu í Madríd. Hann verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 4.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×