Fótbolti

Bayern München fór illa með Manchester City

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/AP
Evrópumeistarar Bayern München sýndu allar sínar bestu hliðar í Meistaradeildinni í fótbolta í kvöld þegar liðið fór illa með enska liðið Manchester City í 3-1 sigri á Etihad-leikvanginum í Manchester-borg.

Pep Guardiola, þjálfari Bayern München, gat fagnað frábærum leik sinna manna sem eru orðnir strax í byrjun október langsigurstranglegasta liðið í Meistaradeildinni. Manchester City var í það minnsta mörgum númerum of lítið fyrir liðsmenn Bayern München í kvöld og tapaði þar með fyrsta Evrópuleiknum á heimavelli í fimm ár.

Bayern-liðið gjörsamlega yfirspilaði lið Manchester City í fyrri hálfleiknum en lærisveinar Manuel Pellegrini sluppu inn í hálfleik bara einu marki undir. Bæjarar voru með boltann 67 prósent af leiktímanum og áttu meira en þrefalt fleiri heppnaðar sendingar.

Franck Ribéry skoraði markið strax á sjöundu mínútu eftir að hann fékk tíma til að láta vaða á markið af 25 metra færi. Ribéry lét ekki bjóða sér slíkt tvisvar og skoraði dæmigert mark fyrir sig en Joe Hart hefði þó mátt gera betur í markinu.

Manchester City byrjaði seinni hálfleikinn ágætlega en svo tók Bayern völdin aftur. Liðsmenn Bæjarara dáleiddu City-menn með laglegu samspili sem endaði með frábærri sendingu Dante inn á Thomas Müller. Müller lék á Hart í markinu og skoraði auðveldlega.

Arjen Robben bætti síðan þriðja markinu við aðeins þremur mínútum síðar þegar hann réðst á vörnina í skyndisókn eftir að City-menn töpuðu boltanum á miðjunni.

Bayern fékk fullt af færum til að bæta við mörkum en Manchester City menn "sluppu" með skrekkinn og Álvaro Negredo náði síðan að minnka muninn í 3-1 tíu mínútum fyrir leikslok.

Bayern endaði leikinn reyndar einum manni færri eftir að Jérôme Boateng fékk beint rautt spjald fyrir að fella Yaya Toure sem var að sleppa í gegn.

Varamenn Manchester City, David Silva og Álvaro Negredo, lífguðu mikið upp á leik City í lokin en komu hreinlega bara of seint inn á völlinn.  City fékk þó færi til að minnka muninn í eitt mark á lokamínútunum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×