Harmageddon

Þetta er ekki úr vísindaskáldsögu

Frosti Logason skrifar
Fyrirtækið Boston Dynamics í Bandaríkjunum hefur hannað nokkuð harðgert vélmenni sem er á fjórum fótum og getur hlaupið ansi hratt.

Vélmennið er hannað í hernaðarlegum tilgangi en Boston Dynamics fær styrki til verkefnisins frá DARPA sem að er undirstofnun bandaríska varnarmálaráðuneytisins.

Í nýju myndbandi frá fyrirtækinu sem birtist á YouTube í gær má sjá fyrirbærið, sem er búið talsvert háværum mótor, hlaupa á um það bil 25 kílómetrahraða. 

Vélmennið er enn í þróun og á eflaust eftir að fara hraðar þegar fram sækir.

Skoðið endilega myndbandið hér fyrir neðan. Þetta minnir óneitanlega á góða vísindaskáldsögu.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.