Fótbolti

Zlatan: Rooney, komdu til Parísar og spilaðu með mér

Zlatan Ibrahimovic.
Zlatan Ibrahimovic. Mynd/NordicPhotos/Getty
Sænski landsliðsmaðurinn Zlatan Ibrahimovic vill að Wayne Rooney verði liðsfélagi sinn hjá franska félaginu Paris Saint Germain fari svo að enski landsliðsmaðurinn yfirgefi Manchester United. Zlatan ræddi þetta í viðtali við The Sun.

„Ég varð mjög spenntur þegar Rooney var orðaður við PSG í sumar. Að mínu mati var það alveg ljóst í sumar að Rooney vildi breyta til og svo hafa hlutirnir ekki verið að ganga alltof vel hjá Manchester United á tímabilinu," sagði Zlatan Ibrahimovic við The Sun.

„Ef hann vill ennþá fara næsta sumar eða bara í janúar þá vil ég hvetja hann til þess að koma til Parísar og spila með mér. Okkar félag er bara á uppleið," sagði Zlatan.

„Hann þyrfti samt að sætta sig við það að Zlatan skoraði alltaf fleiri mörk en hann. Ég vil bara spila með frábærum leikmönnum, tæknilega góðum leikmönnum og hann er einn af þeim," sagði Zlatan Ibrahimovic.

„Það er hægt að æfa sig í tækninni en það er erfitt að kenna hana. Þú annað hvort hefur frábæra tækni eða ekki og Rooney er með hana," sagði Zlatan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×