Fótbolti

Ari lék allan leikinn í frábærum sigri

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
MYND/Valli
OB vann magnaðan 3-1 sigur á Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn fyrir OB.

Emil Larsen kom OB yfir strax á 3. mínútu en Bakenga jafnaði metin tíu mínútum síðar og var staðan í hálfleik 1-1.

Daniel Höegh kom OB yfir á ný þegar sjö mínútur voru til leiksloka og Martin Spelmann gerði út um leikinn fjórum mínútum síðar með þriðja marki OB.

Esbjerg var fyrir leikinn í öðru sæti deildarinnar með 17 stig en OB einu stigi frá fallsæti. OB er nú um miðja deild með 14 stig þegar enn eru nokkrir leikir eftir af 11. umferð deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×