Fótbolti

Allar 102 sendingar Song rötuðu á samherja

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alex Song í leik með Barcelona
Alex Song í leik með Barcelona nordicphotos / getty
Alex Song, leikmaður Barcelona, átti magnaðan leik með liðinu í 4-1 sigri á Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á laugardaginn.

Samkvæmt tölum frá spænska blaðinu Mundu Deportivo rötuðu allar 102 sendingar hans í leiknum á samherja og er það einsdæmi í deildinni.

Song var frábær í leiknum en hann lék aftarlega á miðjunni, braut niður allar sóknir Valladolid í leiknum og hóf margar sóknir fyrir heimamenn í Barcelona.

Song lék allan leikinn fyrir Barcelona en liðið hefur aldrei byrjað betur í deildinni og unnið alla átta leikina á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×