Fótbolti

Casillas fer ekki frá Real Madrid í janúar

Casillas og Carbonero.
Casillas og Carbonero.
Lífið hefur oft verið betra hjá Iker Casillas, markverði Real Madrid og spænska landsliðsins. Hann var settur á bekkinn hjá Jose Mourinho í fyrra og situr þar enn.

Hann fékk þó fáséð tækifæri í vikunni en meiddist eftir aðeins 13 mínútur og varð að fara af velli. Það á ekki af honum að ganga.

Þrátt fyrir mótlætið ætlar hinn 32 ára gamli Casillas ekki að skipta um félag í janúar. Ein aðalástæðan fyrir því er sú að unnusta hans er ólétt og á von á sér upp úr áramótum.

Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, segir að Casillas muni fá fleiri tækifæri. Það sé alveg klárt.

Þó svo Casillas spili ekki neitt er hann enn aðalmarkvörður spænska landsliðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×