Fótbolti

Perez: Casillas fer ekki frá okkur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Iker Casillas hefur verið mikið á bekknum að undanförnu
Iker Casillas hefur verið mikið á bekknum að undanförnu mynd / getty images
Florentino Perez, forseti spænska knattspyrnuliðsins Real Madrid, telur ólíklegt að spænski markvörðurinn Iker Casillas muni yfirgefa Real Madrid í janúarglugganum.

Casillas varð aðalmarkvörður Real Madrid árið 1999 og hefur allar götur síðan staðið í rammanum, þar til á síðustu leiktíð fór hann að detta út úr liðinu.

Diego Lopez hefur verið í marki Real Madrid á þessu tímabili og er spænski landsliðsmarkvörðurinn eðlilega ekki sáttur við sitt hlutskipti hjá liðinu.

„Hann fer líklega ekki frá okkur í janúar, við viljum halda honum hér,“ sagði Perez í spænskum fjölmiðlum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×