Fótbolti

Bale og Ronaldo skoruðu í jafntefli | Myndir

Bale fagnar marki sínu í kvöld.
Bale fagnar marki sínu í kvöld. Nordicphotos/AFP
Gareth Bale opnaði markareikning sinn fyrir Real Madrid í 2-2 jafntefli á útivelli gegn Villarreal í kvöld. Lærisveinar Carlo Ancelotti hafa tíu stig eftir fjóra leiki.

Dani Carvajal kom heimamönnum í Villarreal yfir um miðjan fyrri hálfleikinn áður en Walesverjinn jafnaði þegar hann fylgdi eftir af harðfylgi. Óskabyrjun hjá Bale sem hefur þó átt betri leiki.

Heimamenn fengu ekki síðri færi í síðari hálfleiknum en Diego Lopez var í stuði á milli stanganna hjá gestunum. Cristiano Ronaldo kom Real yfir með ósnyrtilegu marki þegar skot hans hrökk af varnarmanni og lak í net heimamanna.

Guli kafbáturinn gafst ekki upp og Giovani Dos Santos jafnaði metin tuttugu mínútum fyrir leikslok. Þá hafði Gareth Bale þegar yfirgefið völlinn en Walesverjinn er í lítilli leikæfingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×