Fótbolti

Rooney áfram í stuði með nýju höfuðhlífina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/NordicPhotos/Getty
Wayne Rooney skoraði tvö og lagði upp eitt þegar Manchester United vann öruggan 4-2 sigur á þýska liðinu Bayer 04 Leverkusen í fyrsta leik sínum í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í fótbolta en liðin mættust á Old Trafford í kvöld. Það er því ljóst að Rooney kann vel við sig með nýju höfuðhlífina sína.

Þetta var fyrsti leikur David Moyes sem knattspyrnustjóri í Meistaradeildinni og það er óhætt að segja að skoski stjórinn fari vel af stað. Þetta var líka annar sigur United-liðsins á Old Trafford á nokkrum dögum en það eru fyrstu sigrar Moyes í Leikhúsi draumanna.

Wayne Rooney kom Manchester United í 1-0 á 22. mínútu með viðstöðulausu skoti eftir fyrirgjöf frá  Patrice Evra. Markið átti líklega ekki að standa því Antonio Valencia var rangstæður þegar hann truflaði markvörð þýska liðsins.

Wayne Rooney fékk algjört dauðafæri á 52. mínútu til að annaðhvort skora sjálfur eða gefa á dauðafrían Robin van Persie en gerði hvorugt því skotið hans sigldi bæði framhjá stönginni og Van Persie.

Leikmenn Leverkusen þökkuðu pent fyrir þetta og jöfnuðu leikinn í næstu sókn þegar Simon Rolfes skoraði með laglegu langskoti.

Manchester United brást þó vel við þessu mótlæti því Robin van Persie kom United aftur yfir með góðu hægri fótar skoti eftir fyrirgjöf frá Antonio Valencia. Þetta var þrettánda mark hans í síðustu þrettán leikjum með United í öllum keppnum.

Rooney bætti síðan við öðru marki sínu á 70. mínútu eftir að hafa sloppið í gegn eftir langt útspark markvarðarins David De Gea.

Wayne Rooney lagði síðan upp mark fyrir Antonio Valencia á 79. mínútu og Ekvadormaðurinn innsiglaði sigurinn með laglegu skoti.

Ömer Toprak minnkaði muninn fyrir Leverkusen í lokin eftir að United-mönnum mistókst að koma boltanum í burtu eftir hornspyrnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×