Fótbolti

Ancelotti: Coentrao fer hvergi

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Fabio Coentrao
Fabio Coentrao Mynd/Gettyimages
Carlo Ancelotti, stjóri Real Madrid hefur staðfest að Fabio Coentrao verði áfram hjá Real Madrid. Coentrao hefur verið orðaður við Tottenham, Chelsea og Manchester United en hann verður hjá Real allaveganna fram í janúar.

„Fabio fer ekkert, ég skildi að hann vildi fara en ég vill halda honum áfram. Hann hefur samþykkt að vera áfram og allir hjá klúbbnum, þjálfarar og leikmenn eru ánægðir með þá ákvörðun,"

Coentrao gekk til liðs við Real Madrid sumarið 2011 fyrir 30 milljónir evra hefur átt í erfiðleikum hjá Real og ekki náð að slá Marcelo úr byrjunarliðinu.

Coentrao er ekki eini leikmaðurinn sem vill fara frá Real Madrid, mikið hefur verið rætt um framtíð Kaka sem spilaði stórkostlega undir stjórn Ancelotti hjá AC Milan. Ancelotti vildi hinsvegar ekkert tjá sig um verðandi brottfarir eða komur.

„Ég veit ekki hvað mun gerast í dag og á morgun, ég get ekkert sagt um það í dag," sagði Ancelotti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×