Fótbolti

Messi borgaði skattinum rúmar 800 milljónir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lionel Messi.
Lionel Messi. Mynd/NordicPhotos/Getty
Lionel Messi og faðir hans hafa nú gert upp skuld sína hjá spænska skattinum samkvæmt fréttum á Spáni en mál þeirra var á leiðinni fyrir dómstóla.

Spænskir fjölmiðlar hafa birt fréttir af uppgjöri feðganna þótt að ekki hafi komið formleg staðfesting frá yfirvöldum.

Messi-feðgarnir borguðu fimm milljónir evra í sekt sem gera rúmlega 800 milljónir íslenskra króna. Þeir borga því milljón meira en umrædd skuld sem var fjórar milljónir.

Skatturinn taldi Messi-feðgana skulda skatta vegna tekna þeirra af sölu á ímynd hans á árunum 2006 til 2009.

Feðgarnir áttu að koma fyrir dómara í þessum mánuði en nú virðist málið vera úr sögunni. Þeir héldu alltaf fram sakleysi sínu en hafa ákveðið engu að síður að gera upp til að loka málinu sem fyrst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×