Fótbolti

„Hafði alltaf á tilfinningunni að við fengjum rússneskt lið“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sandra María Jessen og félagar eiga langt flug fyrir höndum.
Sandra María Jessen og félagar eiga langt flug fyrir höndum. Mynd/Auðunn Níelsson
„Þetta er bara klárt. Við vitum allt um þetta lið og erum farin að undirbúa okkur fyrir sextán liða úrslitin,“ segir Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þórs/KA.

Jóhann Kristinn var að sjálfsögðu að slá á létta strengi þegar blaðamaður heyrði í honum hljóðið að loknum drættinum í 32-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu.

„Ég hafði alltaf á tilfinningunni að við fengjum rússneskt lið,“ segir Jóhann Kristinn sem fylgdist eðlilega grannt með drættinum.

„Ég á erfitt með að meta möguleika okkar. Maður er náttúrulega bara ósáttur við að hafa fengið þetta ferðalag,“ segir Jóhann Kristinn. Hann rifjar upp að Stjarnan hafi lent í basli á ferðalagi sínu til Rússlands í fyrra og hefði kosið styttra ferðalag. Þegar þrjú lið voru eftir í pottinum voru tvö þeirra dönsk og eitt rússneskt. Umrætt lið í nágrenni Moskvu kom upp úr hattinum.

Jóhann Kristinn Gunnarsson er að ljúka sínu öðru tímabili sem þjálfari Þórs/KA.Mynd/Daníel
Stjarnan mætti þessu sama liði í Meistaradeildinni síðastliðið haust en beið lægri hlut í tveimur leikjum 3-1. Jóhann Kristinn sá fyrri leikinn sem fram fór í Garðabæ og lauk með markalausu jafntefli.

„Þetta var hörkulið. Ég hugsaði reyndar með mér á þessum leik að Stjarnan hefði getað unnið sigur hefði liðið ekki misst mann af velli,“ segir Jóhann Kristinn. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir fékk tvö gul spjöld í fyrri hálfleik sem minnkaði muni Garðabæjarliðsins til muna.

Þór/KA spilaði í Meistaradeild Evrópu haustið 2011. Þá mætti liðið Turbine Potsdam og tapaði samanlagt 14-2.

„Þetta er alltaf ævintýri sama hvernig fer,“ segir Jóhann Kristinn. Hann minnir á að nokkrir af ungum leikmönnum liðsins séu að spila leiki númer þrjú og fjögur í Meistaradeild Evrópu sem sé frábært.

LdB Malmö, lið Söru Bjarkar Gunnarsdóttur og Þóru Helgadóttur, mætir Lilleström. Dráttinn í heild sinni má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×