Fótbolti

Barcelona sigraði á Mestalla | Messi með þrennu í fyrri hálfleik

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Lionel Messi, leikmaður Barcelona skoraði þrennu í fyrri hálfleik.
Lionel Messi, leikmaður Barcelona skoraði þrennu í fyrri hálfleik. Mynd/Gettyimages
Barcelona komst aftur í efsta sæti spænsku úrvalsdeildarinnar með 3-2 sigri á Valencia á Mestalla í kvöld. Lionel Messi átti stórleik og skoraði þrennu í fyrri hálfleik.

Messi sem var markahæstur á síðasta tímabili virðist ekkert vera á þeim buxunum að hætta að skora og kom Barcelona í 3-0 eftir rúmlega fjörutíu mínútna leik. Heimamenn voru fljótir að svara og voru komnir aftur inn í leikinn í fyrri hálfleik. Helder Postiga skoraði tvö mörk í uppbótartíma í fyrri hálfleik og skapaði spennu fyrir seinni hálfleik.

Seinni hálfleikur var hinsvegar töluvert rólegri eftir fimm marka fyrri hálfleik. Bæði liðin fengu ágætis færi en markmennirnir voru í stuði og lokuðu römmunum. Leiknum lauk því með 3-2 sigri Barcelona sem hafa unnið alla leiki sína til þessa á þessu tímabili. Lionel Messi er nú kominn með fimm mörk í tveimur leikjum á þessu tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×