Fótbolti

Celtic í basli | Stál í stál í Eindhoven

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Úr leiknum í Eindhoven í kvöld
Úr leiknum í Eindhoven í kvöld Nordicphotos/AFP
Shakhter Karagandy frá Kasakstan vann 2-0 sigur á Celtic frá Skotlandi í umspili um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld. Fimm leikir fóru fram en um fyrri viðureignir liðanna var að ræða.

Shakhter skoraði mark snemma leiks í Kasakstan og bætti við öðru í síðari hálfleik gegn skosku meisturunum. Lærisveinar Neil Lennon eiga erfitt verkefni fyrir höndum í Glasgow eftir viku.

PSV Eindhoven og AC Milan skildu jöfn í Hollandi. Stephan El Shaarawy kom Ítölunum yfir eftir stundarfjórðung en Slóveninn Tim Matavž jafnaði snemma í síðari hálfleik eftir mistök Abbiati í marki Milan.

Viktoria Plzeň frá Tékklandi er í góðum málum eftir 3-1 sigur á Maribor. Þá vann Real Sociedad 2-0 útisigur á Lyon frá Frakklandi. Baskarnir skoruðu mark í hvorum hálfleik en liðsmaður Lyon fékk reisupassann í síðari hálfleik.

Þá er Zenit frá Pétursborg komið með níu tær af tíu í riðlakeppnina eftir 4-1 útisigur á Pacos De Ferreira í Portúgal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×