Fótbolti

FH-banarnir með annan fótinn í Meistaradeildinni - úrslit kvöldsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Miroslav Stoch fagnar jöfnunarmarki sínu.
Miroslav Stoch fagnar jöfnunarmarki sínu. Mynd/NordicPhotos/Getty
Austurríska félagið Austria Vín er í mjög góðum málum eftir fyrri leik sinn í umspili um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta eftir 2-0 útisigur á króatíska liðinu Dinamo Zagreb í kvöld.

Austria Vín gátu þakkað fyrir að ná að slá Íslandsmeistara FH út í síðustu umferð en þeir héldu þá lífi á 1-0 sigri í fyrri leiknum í Vín. FH-ingar fengu fjölmörg færi til þess að skora í seinni leiknum í Kaplakrikanum en Austria slapp með skrekkinn.

Marin Leovac og Marko Stanković skoruðu mörk Austria á 68. og 75. mínútu en í millitíðinni missti Dinamo Zagreb mann af velli með rautt spjald.

Arsenal er eins og Austria Vín í frábærum málum eftir 3-0 útisigur á Fenerbahce og þá er svissneska liðið Basel vel statt eftir 4-2 útisigur á Ludogorets Razgrad frá Búlgaríu.

Schalke náði ekki að vinna PAOK því Grikkirnir tryggðu sér 1-1 með jöfnunarmarki 17 mínútum fyrir leikslok. Miroslav Stoch skoraði markið mikilvæga.



Úrslit úr leikjum kvöldsins í umspili um sæti í Meistaradeildinni:

Fenerbahce - Arsenal 0-3

0-1 Kieran Gibbs (51.), 0-2 Aaron Ramsey (64.), 0-3 Olivier Giroud, víti (77.)

Dinamo Zagreb - Austria Vín 0-2

0-1 Marin Leovac (68.), 0-2 Marko Stanković.

Ludogorets - Basel 2-4

0-1 Mohamed Salah (12.), 1-1 Marcelo Nascimento da Costa (23.), 2-1 Ivan Stojanov (50.), 2-2 Mohamed Salah (59.), 2-3 (64.)

Schalke 04 - PAOK 1-1

1-0 Jefferson Farfán (32.), 1-1 Miroslav Stoch (73.)

Steaua Búkarest - Legia Varsjá 1-1

1-0 Federico Piovaccari (34.), 1-1 Jakub Kosecki (53.)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×