Fótbolti

Messi spilar líklega ekki um helgina

Lionel Messi.
Lionel Messi.
Tímabilið byrjaði ekki vel hjá besta knattspyrnumanni heims, Lionel Messi, því hann þurfti að fara meiddur af velli í hálfleik í leik Barcelona og Atletico Madrid í gær.

Þetta var fyrri leikur liðanna um Ofurbikarinn á Spáni og endaði hann 1-1. Neymar skoraði mark Barcelona en David Villa, fyrrum leikmaður Barcelona, skoraði fyrir Atletico.

Rannsóknir í dag leiddu í ljós að Messi er marinn á lærinu og þarf tíma til þess að jafna sig. Hann mun því líklega ekki spila um helgina.

Hinn nýi þjálfari Barcelona, Gerardo Martino, hefur þegar sagt að það verði að passa upp á að hvíla Messi reglulega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×