Viðskipti erlent

Ballmer hættir sem framkvæmdastjóri Microsoft

Jóhannes Stefánsson skrifar
„Ég er með fjögur orð handa ykkur: Ég. Elska. Þetta. Fyrirtæki!" Sagði Steve Ballmer á starfsmannafundi Microsoft árið 2000. Hann er þekktur fyrir líflega framkomu sínu á starfsmannafundum félagsins.

Ballmer hefur ástæðu til að elska Microsoft, en vegna stafa sinna hjá félaginu eru eignir hans metnar á 15,2 milljarða bandaríkjadala. Hann hefur starfað fyrir Microsoft frá árinu 1980.

Ballmer hefur nú sagt starfi sínu lausu hjá félaginu en hlutabréf í Microsoft tóku kipp upp á við vegna uppsagnarinnar. Hann hefur verið umdeildur eftir að hann tók við sæti Bill Gates um aldamótin.

Til að mynda sagði Ballmer þegar Steve Jobs kynnti fyrsta iPhone símann til sögunnar að um væri að ræða bólu og síminn myndi ekki seljast vel vegna þess að hann hefði ekki lyklaborð. Svipaða sögu var að segja þegar spjaldtölvur litu dagsins ljós. Fyrir vikið er markaðshlutdeild Microsoft töluvert lakari en hún hefði annars verið.

Gengi Microsoft hefur þó verið gott undir stjórn Ballmers. X-Box vélar félagsins hafa slegið í gegn og hagnaður Microsoft hefur tvöfaldast með hann við stjórnvölinn. Nefnd á vegum félagsins, þar sem Bill Gates situr í forystusætinu, leitar nú arftaka Ballmers.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×