Fótbolti

Barcelona marði Malaga

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Correia fagnar með varamönnum Barcelona -
Correia fagnar með varamönnum Barcelona - MYND:NORIDC PHOTOS/GETTY
Barcelona er með fullt hús stiga eftir 1-0 sigur á Malaga á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Bakvörðurinn Adriano Correia skoraði eina mark leiksins.

Barcelona lék án Lionel Messi sem er meiddur og náði í stigin þrjú þó ekki hafi verið sama flugeldasýning í boði og í fyrstu umferðinni þegar liðið vann 7-0 sigur á Levante.

Correia skoraði einni mínútu fyrir hálfleik og þar við sat. Malaga hefur tapað báðum leikjum sínum á leiktíðinni.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×