Fótbolti

Özil rauk inn í búningsklefa

Mesut Özil.
Mesut Özil.
Spænskir fjölmiðlar virðast vera sammála um það að þýski landsliðsmaðurinn Mesut Özil eigi sér ekki neina framtíð hjá Real Madrid.

Özil var tekinn af velli í leiknum gegn Granada í gær og hann rauk beint til búningsklefa. Viðbrögð hans þóttu renna stoðum undir þann orðróm að Real ætli að selja hann.

Hann hefur þegar verið orðaður við Man. Utd en það er alveg ljóst að fleiri félög munu sýna honum áhuga enda frábær leikmaður.

Karim Benzema skoraði fyrir Real Madrid í gær en hann er orðaður við Arsenal.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×