Fótbolti

Markaveislan heldur áfram hjá Malmö

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir.
Sara Björk Gunnarsdóttir. Mynd/NordicPhotos/Getty
Landsliðskonurnar Sara Björk Gunnarsdóttir og Þóra Björg Helgadóttir voru báðar í byrjunarliðinu og spiluðu allan leikinn í dag þegar LdB Malmö hélt sigurgöngu sinni áfram í sænsku kvennadeildinni í fótbolta.

LdB Malmö vann öruggan 4-0 heimasigur á Linköping og hefur þar með unnið öll efstu lið deildarinnar á síðustu vikum. Þessi sigur skilar liðinu toppsætinu í deildinni og tveggja stiga forskoti á Tyresö.

Malmö hefur ennfremur unnið fjóra fyrstu leiki sína eftir EM-fríið með markatölunni 16-2 og þessi markaveisla liðsins hefur skilað liðinu frábærri markatölu sem mun örugglega koma sér vel í titilbarátunni við Tyresö.

Anja Mittag, Manon Melis, Ramona Bachmann og Katrin Schmidt skoruðu mörk Malmö í dag en Sara Björk átti tvö skot á markið í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×