Fótbolti

Özil vill vera um kyrrt

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mesut Özil í leik með Real Madrid
Mesut Özil í leik með Real Madrid Mynd / Getty Images
Þjóðverjinn Mesut Özil vill sjálfur meina að hann sé ekki á leiðinni frá Real Madrid á næstu sólahringum en leikmaðurinn hefur verið orðaður við Manchester United og Arsenal í vikunni.

Í enskum fjölmiðlum kemur fram í dag að Englandsmeistarar Manchester United ætli sér að bjóða 50 milljónir evra í leikmanninn en hann vill greinilega vera áfram hjá spænska liðinu.

„Ég verð áfram hjá Real Madrid,“ sagði Özil á blaðamannafundi  á Bernabeu-vellinum í morgun en verið var að kynna nýja línu hjá íþróttavöruframleiðandanum Adidas.

Staða leikmannsins hjá Real Madrid mun að öllum líkindum versna þegar Gareth Bale verður kynntur til leiks hjá Real Madrid.  Félagið mun líklega nota þann pening sem fæst fyrir Özil til að greiða heimsmetsfé fyrir Bale.

„Ég er ánægður hjá klúbbnum og stoltur af því að klæðast treyjunni. Samningur minn er til ársins 2016 og vill ég vera til frambúðar hjá Real Madrid.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×