Fótbolti

Sigurmark á síðustu stundu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hallgrímur Jónasson í leik með íslenska landsliðinu á dögunum.
Hallgrímur Jónasson í leik með íslenska landsliðinu á dögunum. Mynd/Daníel
Hallgrímur Jónasson og félagar hans í SönderjyskE komust naumlega áfram í danska bikarnum í kvöld eftir 1-0 útisigur á C-deildarliðinu Boldklubben 1908 en leikurinn fór fram á Amager.

SönderjyskE skoraði ekki eina mark leiksins fyrr en einni mínútu fyrir leikslok en það var félagi Hallgríms í vörninni, Daniel Christensen, sem skoraði markið sem kom liðinu áfram í 3. umferð bikarsins.

Hallgrímur kom inn á sem varamaður í þessum leik en hann hefur verið í byrjunarliðinu í deildinni og skoraði meðal annars mark liðsins í síðasta deildarleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×