Fótbolti

Rúnar fékk fáar mínútur en minnti á sig

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rúnar Már Sigurjónsson.
Rúnar Már Sigurjónsson. Mynd/Daníel
Rúnar Már Sigurjónsson og félagar í Sundsvall gerðu 2-2 jafntefli við Ängelholm í sænsku b-deildinni í fótbolta í kvöld. Ängelholm komst tvisvar yfir í leiknum en Sundsvall náði að jafna í bæði skiptin.

Rúnar Már kom inn á sem varamaður á 84. mínútu en þá var Simon Helg nýbúinn að jafna leikinn í 2-2. Rúnar fékk því aðeins sex mínútur en minnti á sig og náði meðal annars tveimur skotum á mark Ängelholm.

 

Rúnar Már kom til Sundsvall frá Val á miðju tímabili en þetta voru fyrstu mínútur hans í sænsku b-deildinni. Jón Guðni Fjóluson sat hinsvegar allan tímann á bekknum.

Sundsvall er áfram í efsta sæti deildarinnar en Ängelholm sextán stigum og sjö sætum neðar. Örebro er einu stigi á eftir Sundsvall en á leik inni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×