Fótbolti

Ánægður með vistaskiptin til Fredrikstad

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Haraldur Björnsson er mættur til Fredrikstad.
Haraldur Björnsson er mættur til Fredrikstad. Mynd/Heimasíða Fredrikstad
Haraldur Björnsson hefur verið lánaður frá Sarpsborg 08 til Fredrikstad sem leikur í norsku b-deildinni.

„Mér líður vel og er hæstánægður með tækifærið að spila fyrir Fredrikstad," segir Haraldur í viðtali við heimasíðu félagsins.

Haraldur hefur verið lengi frá keppni vegna meiðsla en er að komast af stað. Hann mun leysa Jon Masalin af hólmi í marki Fredrikstad en Masalin glímir við meiðsli.

„Ég finn til með Jon og óska honum góðs bata. Vonandi verður hann kominn aftur í slaginn sem fyrst," segir Haraldur.

Haraldur var í lykilhlutverki hjá Sarpsborg á síðustu leiktíð þegar liðið vann sér sæti á meðal þeirra bestu í Noregi. Liðinu hefur hins vegar gengið erfiðlega á leiktíðinni og situr sem stendur í 14. sæti af sextán liðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×