Íslenski boltinn

Tólf sigrar í röð hjá Stjörnunni

Harpa var á skotskónum í kvöld.
Harpa var á skotskónum í kvöld.
Topplið Pepsi-deildar kvenna, Stjarnan, komst í hann krappann er liðið sótti FH heim í Kaplakrika í kvöld.

Eftir mikið basl framan af reif Stjarnan sig upp og kláraði leikinn, 1-3. Liðið er þar með búið að vinna alla tólf leiki sína í deildinni.

Hugrún Elvarsdóttir kom FH yfir í upphafi seinni hálfleiks og þannig var staðan þar til Harpa Þorsteinsdóttir jafnaði 25 mínútum fyrir leikslok.

Harpa var ekki hætt því hún skoraði sitt annað mark fimm mínútum síðar.  Það var svo Megan Lindsey sem skoraði lokamarkið skömmu fyrir leikslok.

Stjarnan því sem fyrr með yfirburðastöðu í deildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×