Þessi súkkulaðikaka er ýkt girnileg Ellý Ármanns skrifar 15. ágúst 2013 15:45 Dröfn er gift og á þrjú börn og eitt stjúpbarn.
Dröfn Vilhjálmsdóttir, geislafræðingur með meistaragráðu í bókasafns- og upplýsingafræði starfar á skólabókasafni. Það sem okkur þykir áhugavert er girnilegt matarblogg Eldhússögur sem hún heldur úti á veraldarvefnum en Dröfn byrjaði að blogga í júní 2012. Alltaf haft áhuga á matargerð „Ég hef alltaf haft áhuga á matargerð og bakstri. Mér finnst magnað hversu auðvelt það er í raun að galdra fram dásamlega góðan mat eða kökur úr einföldum hráefnum. Þess vegna ætti maður í raun aldrei að þurfa að borða óspennandi, óhollan eða vondan mat," útskýrir Dröfn. „Með þetta að leiðarljósi veitir bloggið mér aðhald og hvatningu til þess að læra eitthvað nýtt og prófa mig áfram í eldhúsinu og koma þannig í veg fyrir að ég festist í sama farinu í matargerð. Mér finnst bloggið ákaflega hentugur vettvangur til þess að halda utan um uppskriftirnar mínar og miðla þeim til minna nánustu sem hafa áhuga." „Þessi kaka er ekki bara ákaflega fljótleg og þægileg - það þarf enga hrærivél- heldur er hún afskaplega ljúffeng," segir Dröfn sem heldur úti matarbloggi sem ber yfirskriftina Eldhússögur úr Kleifarselinu. Súkkulaðikaka með Pipp bananakremi Uppskrift 250 gr suðusúkkulaði 150 gr smjör 1 dl sykur 4 egg 2 tsk vanillusykur 1/2 tsk lyftiduft 1/2 dl hveiti (má nota maísenamjöl fyrir glútenfría köku) Mmm... Krem 25 g smjör 1/2 dl rjómi 200 gr Pipp með bananabragði (selt í 100 gramma plötumSjá meira hér. Dröfn tekur líka ofboðslega fallegar myndir af því sem hún eldar eða bakar. Vinsælt blogg „Hins vegar hefur bloggið undið hratt upp á sig og þegar mest lætur fæ ég fimmtán þúsund heimsóknir á dag sem er auðvitað komið langt út fyrir nánustu fjölskyldu en það er afar skemmtilegt að svona margir sýni blogginu áhuga." „Á bloggið set ég ekki eingöngu inn uppskriftir heldur legg ég mikla áherslu á að hafa góðar myndir af matnum og oft á tíðum ferlinu við matargerðina. Að sama skapi skrifa flétta ég oft frásögnum og myndum frá hversdagslífinu inn í bloggið til að gefa uppskriftunum lit. Þannig matarblogg finnst mér sjálfri skemmtilegast að lesa, matur og matargerð tengjast svo náið fólki og félagsskap að þetta tvennt er ekki hægt að aðskilja," segir Dröfn að lokum. Eldhússögur úr Kleifarselinu.
Eftirréttir Kökur og tertur Súkkulaðikaka Uppskriftir Mest lesið Með húsaflutninga á heilanum Lífið Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Lífið Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Lífið Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Lífið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið