Fótbolti

Ancelotti þarf ekkert Gareth Bale

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gareth Bale
Gareth Bale Mynd/AFP
Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, er fyllilega sáttur með leikmannahópinn sinn og þarf ekkert fleiri leikmenn. Tottenham-maðurinn Gareth Bale hefur verið orðaður við spænska stórliðið í allt sumar og lengi vel var slúðrað um það að Real-menn ætluðu að gera Bale að dýrasta knattspyrnumanni heims.

Gareth Bale vill sjálfur fara til Real Madrid samkvæmt heimildarmönnum enskra fjölmiðla í herbúðum Tottenham en Tottenham vill ekki selja leikmanninn.

„Ég er mjög ánægður með leikmannahópinn og við þurfum ekki á fleiri leikmönnum að halda," sagði Carlo Ancelotti sem tók við liði Real Madrid í sumar af Jose Mourinho.

„Nú er mikilvægast að búa til leikstíl sem leikmenn liðsins finna sig í. Markmið okkar er ekki bara að vinna heldur einnig að spila skemmtilegan fótbolta, " sagði Ancelotti.

Gareth Bale er meiddur og mun ekki spila með liði Tottenham fyrr en í fyrsta lagi í september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×