Fótbolti

Barcelona skoraði sex mörk í fyrsta hálfleik tímabilsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/NordicPhotos/Getty
Barcelona byrjar vel í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta en liðið vann 7-0 stórsigur á Levante í dag. Lionel Messi og Pedro skoruðu báðir tvö mörk og Cesc Fàbregas fékk tækifæri í byrjunarliðinu og lagði upp þrjú mörk.

Barcelona-liðið fór á kostum í fyrri hálfleiknum og skoraði þá sex mörk. Þeir sýndu Levante miskunn eftir hlé og bættu þá bara við einu marki.

Alexis Sánchez skoraði fyrsta markið á 3. mínútu eftir sendingu frá Cesc Fàbregas.

Lionel Messi skoraði annað markið á 12. mínútu eftir sendingu frá Pedro, Dani Alves skoraði þriðja markið á 23. mínútu og á 26. mínútu launaði Messi greiðann og lagði upp fjórða markið fyrir Pedro.

Lionel Messi skoraði fimmta markið úr vítaspyrnu á 42. mínútu og Xavi skoraði síðan sjötta markið á lokamínútu hálfleiksins eftir sendingu frá Cesc Fàbregas.

Neymar kom inná fyrir Alexis Sánchez á 64. mínútu leiksins. Neymar og Lionel Messi fengu aðeins 26 mínútur saman því Messi var tekinn af velli á 71. mínútu.

Cesc Fàbregas átti þriðju stoðsendingu sína í leiknum á 73. mínútu þegar Pedro kom Barcelona í 7-0.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×